Home Fréttir Í fréttum Höfnin kaupir hús af Fiskmarkaði Snæfellsbæjar

Höfnin kaupir hús af Fiskmarkaði Snæfellsbæjar

12
0
Nesvegur 4 í Grundarfirði stendur á góðum stað við höfnina. Mynd/Remax

„Á lóðinni stendur gamalt frystihús sem hafnarstjórn sér fyrir sér að muni í framtíðinni víkja fyrir nýrri byggingu eða byggingum, á dýrmætri byggingarlóð á hafnarsvæðinu.“

Hafnarsjóður Grundarfjarðar hefur fest kaup á byggingunni á Nesvegi 4 sem er í eigu Fiskmarkaðs Snæfellsbæjar ehf.

Að því er segir í fundargerð hafnarstjórnarinnar er tilgangurinn með kaupunum á húsinu sá að tryggja yfirráð yfir dýrmætri lóð. Hún sé alls yfir 7.200 fermetrar að flatarmáli, alveg við Norðurgarð, meginviðlegukant og athafnasvæði hafnarinnar.

Dýrmæt byggingarlóð á hafnarsvæðinu

„Á lóðinni stendur gamalt frystihús sem hafnarstjórn sér fyrir sér að muni í framtíðinni víkja fyrir nýrri byggingu eða byggingum, á dýrmætri byggingarlóð á hafnarsvæðinu. Taka gæti þurft upp nýtt deiliskipulag Framness austan Nesvegar, vegna skipulags á lóðinni og í tengslum við möguleg ný áform um nýtingu lóðarinnar. Það er þó ekki tímabært umræðuefni,“ segir í fundargerð hafnarstjórnarinnar.

Fram kemur að kaupverðið sé 30 milljónir króna og að fasteignin sé alls 4.786,4 fermetrar, upphaflega byggð 1941 en hlutar hennar síðar.

Fram kemur í söluyfirliti Fasteignasölunnar Remax að húsið hafi verið byggt sem fiskvinnsluhús en að það sé nú nýtt sem geymsla undir ferðavagna og tæki sem um þessar mundir séu alls um níutíu talsins. Þeir verði í húsnæðinu fram í byrjun maí.

Mynd/Remax

Tekið var fram í auglýsingunni að tækifæri gætu falist í góðri staðsetningu lóðarinnar í Grundarfjarðarhöfn sem tekið hafi við 55 þúsund farþegum skemmtiferðaskipa í fyrra.

Heimild: Fiskifrettir.vb.is