Mosfellsbær óskar eftir áhugasömum aðilum til að taka þátt í útboði endurnýjunar götu, gangstétta og allra veitulagna í Markholti.
Helstu verkþættir eru:
Um er að ræða endurnýjun götukassa ásamt öllum veitulögnum í Markholti, Mosfellsbæ. Ljúka skal uppbyggingu götu og leggja í þær vatns-, fráveitu-, hitaveitu og rafmagnslagnir ásamt því að tengja við núverandi veitukerfi. Ganga skal frá yfirborði götu og götulýsingu.
Helstu magntölur:
- Gröftur 3.700 m3
- Fylling 3.500 m3
- Holræsi 700 m
- Vatnsveitulagnir 880 m
- Hitaveitulagnir 835 m
- Ídráttarrör 200 m
- Jarðstrengir 1400 m
- Upps. ljósastólpa 16 stk
- Malbik 2600 m2
Verkinu skal vera lokið 16. október 2026.
Útboðsgögn verða eingöngu afhent rafrænt. Beiðnir um útboðsgögn má senda á netfangið mos@mos.is. Útboðsgögn verða afhent frá og með kl. 10:00 þriðjudaginn 24. febrúar 2026.
Tilboðum skal skilað rafrænt á netfangið mos@mos.is eigi síðar en kl. 11:00 miðvikudaginn 11. mars 2026.
Tilboð verða opnuð miðvikudaginn 11. mars kl. 11:30. Fundargerð verður send bjóðendum eftir opnun.












