Vegagerðin býður hér með út styrkingu, breikkun og klæðingu Þorlákshafnarvegar (38-01), frá Læk í Ölfusi að Þrengslavegamótum. Verkið felst í styrkingu, breikkun og klæðingu bundins slitlags vegar sem er nú að jafnaði um 7 m breiður, í 8,0 m breiðan veg með 7,8 m breiðu bundnu slitlagi og 2 x 10 cm breiðum malar öxlum.
Framkvæmdarkaflinn sem um ræðir er um 3,0 km að lengd.
|
Skeringar
|
5.802 m3
|
|
Fláafleygar
|
3.723 m3
|
|
Fyllingar
|
3.161 m3
|
|
Styrktarlag 0/63
|
9.033 m3
|
|
Burðarlag 0/22
|
5.408 m3
|
|
Tvöföld klæðing
|
24.151 m2
|
|
Fræsing klæðingar
|
20.400 m2
|
|
Frágangur fláa
|
28.244 m2
|
Verkinu skal að fullu lokið fyrir 1. sptember2026.
Útboðsgögn eru afhent rafrænt í TendSign útboðskerfinu. Afhending gagnanna er án endurgjalds, frá og með mánudeginum 23. febrúar 2026 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 10. mars 2026.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og heildartilboðsupphæð.












