Home Fréttir Í fréttum 17.03.2026 Laugar­vatns­vegur (37), Laugar­vatn-Hjálms­stað­ir, styrk­ing og malbik

17.03.2026 Laugar­vatns­vegur (37), Laugar­vatn-Hjálms­stað­ir, styrk­ing og malbik

34
0

Vegagerðin býður hér með út styrkingu og malbikun 3,0 km kafla á Laugarvatnsvegi,  frá Laugarvatni að Hjálmsstöðum. Verkið felst í að, jarðvegsskipta fyrir breikkun í köntum, fræsa upp núverandi slitlagi á veginum, jafna því út og breikka veg lítilsháttar og keyra að jafnaði 20 cm þykku burðarlagi yfir, endurnýjun ræsa og malbika svo yfir. 

Helstu magntölur eru:
Skeringar
3.094 m3
Lögn ræsa
30 m
Fláafleygar
1.522 m3
Styrktarlag 0/63
2.175 m3
Burðarlag 0/45
4.050 m3
Slitlagsmalbik á möl 6 cm
23.471 m2
Fræsing slitlags
22.386 m2
Frágangur fláa
16.381 m2

Verkinu skal að fullu lokið fyrir  15. ágúst 2026.

Útboðsgögn eru afhent rafrænt í TendSign útboðskerfinu. Afhending gagnanna er án endurgjalds, frá og með mánudeginum 23. febrúar 2026 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 17. mars 2026.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og heildartilboðsupphæð.