Stjórnendur arkitekta- og verkfræðistofa vænta samdráttar í verkefnum á íbúðamarkaði á næstunni samkvæmt nýrri könnun Outcome fyrir Samtök iðnaðarins, SI.
Eins og fram kemur í greiningunni eru arkitekta- og verkfræðistofur framarlega í byggingarferlinu og gefa niðurstöðurnar vísbendingu um að hægja muni að óbreyttu á uppbyggingu íbúða litið til næstu 1-2 ára.

Heimild: Mbl.is












