Nærri helmingur stjórnenda arkitekta- og verkfræðistofa telur að verkefnum á íbúðamarkaði fækki á næstu tólf mánuðum. Meirihlutinn telur að verkefnin standi í stað en sárafáir telja að þeim fjölgi.
Þetta er niðurstaða könnunar Samtaka iðnaðarins. Samkvæmt henni telja 55 prósent stjórnenda að verkefnum hvorki fækki né fjölgi, 43 prósent telja að þeim fækki og aðeins eitt prósent telur að þeim fjölgi.
Samtökin könnuðu líka mat stjórnenda verktækjafyrirtækja sem byggja íbúðir á eigin reikning. Þeir telja að nokkurn veginn jafn margar íbúðir verði í byggingu eftir tólf mánuði eins og nú. Háir vextir og hækkanir sveitarfélaga dragi úr framkvæmdum.
Heimild: Ruv.is












