Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Framkvæmdir við stækkun bráðamóttöku Landspítala í Fossvogi í fullum gangi

Framkvæmdir við stækkun bráðamóttöku Landspítala í Fossvogi í fullum gangi

61
0
Mynd: NLSH.is

Framkvæmdir standa nú yfir við stækkun á bráðamóttöku Landspítala í Fossvogi.

Um er að ræða hönnun, framleiðslu á húseiningum og að reisa nýja matsdeild fyrir bráðamóttökuna í Fossvogi, um 700 fermetra. Í húsnæðinu verða meðal annars 20 legurými, vaktherbergi og ýmis önnur rými tengd starfsemi spítalans, tengigangur verður yfir í núverandi byggingu Landspítala í Fossvogi.

„Verkið gengur ágætlega, en framkvæmdum í námunda við spítala á rúmlega fullum afköstum kallar á náið og gott samstarf við alla aðila. Jarðvinnu er að ljúka og uppsetning húseininga hefst í fyrri hluta mars ,“ segir Steinar Þór Bachmann verkefnastjóri hjá NLSH

Heimild: NLSH.is