Home Fréttir Í fréttum Ganga til samninga við Launafl vegna fyrsta hluta endurnýjunar Stríðsárasafnsins

Ganga til samninga við Launafl vegna fyrsta hluta endurnýjunar Stríðsárasafnsins

34
0
Mynd : Austurfrett.is

Bæjarráð Fjarðabyggðar samþykkti í vikunni að ganga til samninga við fyrirtækið Launafl vegna byggingar nýs bragga og móttökuhúss Stríðsárasafnsins á Reyðarfirði. Öll tilboðin sem bárust voru nokkuð undir kostnaðaráætlun.

Eins og Austurfrétt greindi frá snemma í vetur ákvað Fjarðabyggð að fara af krafti í uppbyggingu og endurnýjun Stríðsárasafnsins á næstu árum en það skal gert í þremur áföngum.

Fyrsta skrefið, sem ljúka skal strax næsta sumarið, er bygging nýs bragga og sérstaks 80 fermetra móttökuhúss fyrir gesti eins og sést á meðfylgjandi teikningu frá arkitektastofunni Stiku en þessi fyrsti áfangi í uppbyggingunni er fullfjármagnaður.

Kostnaðaráætlun Fjarðabyggðar gerði ráð fyrir að kostnaður við fyrsta áfangann yrði kringum 78 milljónir króna og þar innifalin uppsteypa, jarðvegsskipti og lagnir í jörð. Öll þrjú tilboðin sem bárust voru vel undir þeirri fjárhæð. Þar um að ræða fyrirtækin Launafl sem gat tekið verkið að sér fyrir 69,2 milljónir, Trévang sem bauð 69,7 milljónir og Nestak sem bauð 70,2 milljónir.

Bæjarráð Fjarðabyggðar samþykkti tilboð Launafls og fól bæjarstjóra að skrifa undir verksamning en með þeim fyrirmælum að tímamörk verkþáttarins standist enda sé stefnt að opnun safnsins og þar með nýju bygginganna snemma næsta sumarið.

Af hálfu Fjarðabyggðar stendur einnig þegar yfir fjáröflun fyrir öðrum áfanga framkvæmdana við safnið og meðal annars verið sótt um styrk vegna þess úr Fiskeldissjóði.

Heimild: Austurfrett.is