Home Fréttir Í fréttum 12.03.2026 Vatnsveita Árborgar. „Dælustöð og vatnsgeymir“.

12.03.2026 Vatnsveita Árborgar. „Dælustöð og vatnsgeymir“.

7
0
Árborg. Ljósmynd: Haraldur Guðjónsson

Vatnsveita Árborgar óskar eftir tilboðum í: „Dælustöð og vatnsgeymir“.

Verkið felur í sér uppbyggingu dælustöðvar vatnsveitna í Sveitarfélaginu Árborg ásamt vatnsgeymi samkvæmt skilmálum útboðsgagna. Byggingarnar eru uppsteyptar með holplötum í þaki í megindráttum.

Dælustöðin er tvær hæðir, 1. hæð og kjallari. Birt flatarmál byggingarinnar er 220,1 m². Í byggingunni verður dælubúnaður til að dæla vatni, búnaður því tengdur og salerni. Vatnsgeymirinn er rúmlega 2.000 m³ geymir með sambyggðu lokahúsi fyrir lagnatengingar við geyminn. Vatnsgeymirinn er um 675 m².

Helstu áætlaðar magntölur eru:
Fyllingar 1.300 m³
Veggjamót 1.970 m²
Steypustyrktarstál 52.300 kg
Steinsteypa 550 m³
Forsteyptar þakeiningar 700 m²
Útveggjaklæðning 530 m²

Jarðvinnu og uppsteypu burðarvirkis dælustöðvar og vatnsgeymis skal lokið 15.10.2026 og heildarverki skal að fullu lokið 15. ágúst 2027.

Útboðsgögn verða afhent á útboðvef sem er aðgengilegur hér.

Tilboðum skal skila rafrænt í útboðskerfinu Ajour. Tilboð skulu sett fram með þeim hætti sem sett er fram í útboðskerfinu og í samræmi við skilmála útboðs og hlaða upp þeim skrám sem gerð er krafa um. Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar hann hefur skilað tilboði. Ef enginn póstur berst, hefur afhending ekki tekist.

Bjóðendur skulu í þeim tilfellum leita til Ajour þjónustuaðila án tafar. Bjóðandi ber ábyrgð á að tilboð berist á réttum tíma og eru hvattir til að hefja tímanlega vinnu við að skila þeim inn.

Skilafrestur tilboðs er til kl. 11:00 fimmtudaginn 12. mars 2026.

Opnun tilboða verður framkvæmd með rafrænum hætti á útboðsvefnum eftir að skilafrestur tilboða er liðinn. Bjóðendum verður því ekki boðið að mæta á opnunarfund en í kjölfar opnunar tilboða verður bjóðendum sent opnunaryfirlit rafrænt.

Mannvirkja og umhverfissvið Árborgar

Sjá frekar.