Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Lokaáfangi hafinn á Norðurgarði

Lokaáfangi hafinn á Norðurgarði

15
0
Garðurinn er afar vinsæll meðal dorgveiðimanna og strandstígurinn vel nýttur af bæjarbúum. mbl.is/KHJ

Hafnarfjarðarhöfn hefur síðustu ár unnið að endurbótum á svokölluðum Norðurgarði, sem er elsti hafnargarður hafnarinnar og var byggður í upphafi fimmta áratugar síðustu aldar.

Framkvæmdum við frágang á Norðurbakkasvæðinu er að mestu lokið og í fyrrasumar var Norðurgarður steyptur upp. Nú er lokafrágangur hafinn á garðinum og næsta umhverfi.

Norðurgarður og nærliggjandi svæði mun í sumar taka miklum breytingum. Uppbygging hefur verið mikil undanfarið við höfnina. Teikning/Landslag

Heimild: Mbl.is