Home Fréttir Í fréttum Áforma byggð á bílastæðum sunnan Smáralindar

Áforma byggð á bílastæðum sunnan Smáralindar

40
0
Ljósmynd: Aðsend mynd

Halldór Benja­mín telur lík­legt að verk­efnið verði sett í for­grunn hjá Heimum. Gert er ráð fyrir allt að 400 stæðum neðanjarðar.

Heimar fasteignafélag undirbúa nú í samstarfi við fasteignaþróunarfélagið Klasa uppbyggingu á suðursvæði Smáralindar þar sem í dag eru bílastæði. Gert er ráð fyrir blöndu af skrifstofu- og atvinnuhúsnæði auk 80 íbúða.

„Við gerum ráð fyrir því að yfir nokkurra ára tímabil munum við fullnýta byggingarrétti sem eru einhvers staðar á bilinu 22-23 þúsund fermetrar,“ sagði Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima á uppgjörsfundi á fimmtudaginn.

Hann benti á að til samanburðar sé Smáralindin 63 þúsund fermetrar.

„Þetta er ekki einhver óravegur í framtíðina. Mér finnst líklegt að þetta verði það verkefni sem við setjum nánast í forgrunn. Við munum reyna að hefjast handa í þessu verkefni á næstu misserum,“ sagði Halldór Benjamín.

Bílastæði færð í kjallara

Í dag eru 439 yfirborðs bílastæði á umræddum lóðum við Silfursmára. Gert er ráð fyrir allt að 400 stæðum neðanjarðar í bílakjallara og allt að 50 stæðum ofanjarðar í skipulagstillögunni.

Í fjárfestakynningu Heima segir að heimilt verði að byggja allt að 20 þúsund fermetrar neðanjarðar á tveimur hæðum þar sem bílastæði verða sem þjóna munu bæði nýbyggingum og Smáralind.

Heimar lögðu umrædda lóð inn í Klasa við kaup á þriðjungshlut í fasteignaþróunarfélaginu árið 2022 og eiga kauprétt á öllu verslunar- og atvinnuhúsnæði á lóðinni að þróun lokinni.

Teikning tekin úr skipulagstillögu.

Stefnir í annað metár hjá Smáralind

Halldór Benjamín fór yfir nokkur þróunarverkefni fasteignafélagsins á téðum fundi og sagði að fyrirhuguð uppbygging við Smáralind væri í uppáhaldi af þeim.

„Ég hef styrkst í þeirri trú hér á undanförnum misserum að Smáralindasvæðið, að Smárinn, er að verða einn eftirsóttasti kjarni landsins.”

Hann talaði um að undanfarið hafi verið náð fram umbyltingu í Smáralindinni, þar á meðal með opnun mathallarinnar Garðsins, fjölgun bíósala í Smárabíó. Auk þess minntist hann á nýja atvinnuhúsnæðið að Silfursmára 12 sem þegar er búið að fylla.

„Aðsóknarmet í Smáralind var slegið á síðasta ári og við sjáum að hvernig þetta ár byrjar þá gerum við ráð fyrir að árið 2026 verði aftur metár í Smáralind. Það er ekki bara mathöllin sem er að keyra þetta heldur eru heimsóknir í Smáralind að vaxa það mikið að velta allra rekstraraðila er að vaxa umtalsvert á ári. Þess vegna er þetta miklu meira en bara einhver mathöll.“

Smárinn er stærsta kjarnasvæði Heima. Mynd tekin úr fjárfestakynningu fasteignafélagsins.

Heimild: Vb.is