Home Fréttir Í fréttum Risafyrirtæki dýpkar við Höfn

Risafyrirtæki dýpkar við Höfn

17
0
Dýpkunarskip sem er í eigu Boskalis Westminster Ltd.

Skrifað var í vikunni undir verksamning milli Hornafjarðarhafnar og Boskalis Westminster Ltd. um dýpkun Grynnslanna við Hornafjörð. Undirritunin fór fram í húsnæði Vegagerðarinnar sem sá um útboðið. Samningurinn gildir næstu þrjú árin og dýpkunin verður framkvæmd einu sinni á ári.

Boskalis Westminster Ltd. er hollenskt dýpkunarfyrirtæki, hluti af Royal Boskalis Group, sem starfar í yfir 90 löndum með um 11 þúsund starfsmenn og ríflega 500 skip. Er þetta eitt öflugasta fyrirtæki heims á sínu sviði. Það hefur ekki áður starfað á Íslandi.

Ranghermt var í frétt í Morgunblaðinu 29. janúar sl. að þetta væri breskt fyrirtæki og er beðist velvirðingar á því.

Útboðið var auglýst í lok síðasta árs og óskað eftir tilboðum í viðhaldsdýpkun á innsiglingarrennu að Hornafjarðarhöfn, Grynnslunum.

Tilboð bárust frá sex fyrirtækjum en Boskalis Westminster Ltd. bauð best. Til verksins fara 300 milljónir króna á ári og í tilboðunum var tilgreint hversu marga rúmmetra fyrirtækin gætu dýpkað fyrir þá fjárhæð.

Boskalis Westminster Ltd. bauðst til að dýpka um 1.955.000 rúmmetra á þessum þremur árum. Sveigjanleiki í útboðinu er nokkur því fyrirtækið getur valið hvenær það dýpkar á tímabilinu maí til október, að því er fram kemur á heimasíðu Vegagerðarinnar.

Mikil þörf er á dýpkun innsiglingarinnar til Hafnar í ljósi umfangsmikilla fjárfestinga í sjávarútvegi á svæðinu á undanförnum misserum. Eru þær á annan tug milljarða.

Heimild: Mbl.is