Fasteignafélag í eigu Boga Þórs Siguroddssonar og Lindu Bjarkar Ólafsdóttur kaupir atvinnuhúsnæði í Hafnarfirði.
Módelhús ehf., fasteignafélag í eigu Boga Þórs Siguroddssonar og Lindu Bjarkar Ólafsdóttur, hefur keypt tæplega 1.500 fermetra atvinnuhúsnæði við Selhellu 2 í Hafnarfirði. Módelhús keypti eignina af verktakafyrirtækinu Borgarafli og nam kaupverðið 737 milljónum króna.
Atvinnuhúsnæðið við Selhellu 2 er skammt frá höfuðstöðvum Icelandair. Hafa Módelhús gert samning um útleigu á húsnæðinu til Héðins hurða ehf.

Módelhús hafa verið nokkuð um umsvifamikil á fasteignamarkaði undanfarin misseri. Fyrir rúmu ári síðan keypti félagið sem dæmi fimm fasteignir af fasteignafélaginu Heimum.
Nam söluandvirði þeirra eigna tæplega 3,3 milljörðum króna. Voru þetta eignir við Eyrartröð 2a, Norðurhellu 10 og Reykjavíkurvegi 74 í Hafnarfirði, auk fasteigna að Vatnagörðum 6 og Vatnagörðum 8 í Reykjavík. Heildarfermetrafjöldi þessara eigna var um 9 þúsund fermetrar.
Á árinu 2024 högnuðust Módeleignir um tæplega 2.1 milljarð króna. Bogi Þór og Linda Björk eiga einnig Fagkaup í gegnum félagið AKSO ehf.
Heimild: Vb.is












