Óskað er eftir tilboðum í Borgarlýsing, stýrikerfi, skápastýringar EES útboð nr. 16258
Skrifstofa fjármálaþjónustu og ráðgjafar, fyrir hönd Umhverfis og skipulagssviðs Reykjavíkur, eftir tilboðum í stýrikerfi fyrir borgarlýsingu, hér eftir nefnt SFB, ásamt útvegun búnaðar, aðlögun, innleiðingu, hýsingu og þjónustu.
Um er að ræða skápastýringar og miðlægan hugbúnað sem heldur utan um borgarlýsingu í Reykjavík og styður rekstur, stýringu og rekjanleika aðgerða í kerfinu.
Útboðið innifelur meðal annars
- Skápastýringar og tengdan búnað fyrir borgarlýsingu
- Miðlægan hugbúnað fyrir SFB sem notaður er í vafra og hentar einnig snjalltækjum
- Aðlögun, innleiðingu og hýsingu lausnar
- Þjónustu, viðhald og aðstoð á samningstíma
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:00 þann 9. janúar 2026. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:15, þann 17. mars 2026.












