Home Fréttir Í fréttum Gamla bandaríska sendiráðið verði rifið að hluta og breytt í íbúðarhúsnæði

Gamla bandaríska sendiráðið verði rifið að hluta og breytt í íbúðarhúsnæði

58
0
Laufásvegur 21-23 sem hýsti bandaríska sendiráðið til 2020. Þessi hluti húsnæðisins, þar sem inngangurinn er, verður rifinn nái áætlanir fram að ganga. RÚV – Ragnar Visage

Til stendur að rífa viðbyggingar gamla sendiráðs Bandaríkjanna í Þingholtunum og byggja þar upp íbúðahúsnæði.

Fasteignaþróunarfélagið Mannverk hyggst rífa hluta gamla bandaríska sendiráðsins við Laufásveg 19 og 21-23 og Þingholtsstræti 34 og ráðast í uppbyggingu íbúðarhúsnæðis á lóðinni. Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt að auglýsa breytingu á deiliskipulagi vegna verkefnisins.

Þetta kemur fram í fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 3. febrúar. Samkvæmt tillögu Mannverks verða viðbyggingar rifnar, Laufásvegur 21 og 23 hækkaðir um eina hæð og nýbyggingu bætt við að Þingholtsstræti 36.

Með tillögunni fylgir einnig umsögn frá Minjastofnun vegna fyrirhugaðra breytinga á Þingholtsstræti 34, sem er friðað vegna aldurs. Til stendur að hækka ris hússins, en að öðru leyti á að endurnýja og lagfæra húsið með hliðsjón af upprunalegri gerð.

Húsið við Þingholtsstræti 34. Það var byggt 1900 og er friðað.
RÚV / Ragnar Visage

Minjastofnun gerir ekki athugasemd við hækkun þaksins og fagnar áformum um endurgerð hússins þar sem klæðningar og gluggar verði endurnýjuð í samræmi við upphaflega gerð. Stofnunin fer fram á að fornleifafræðingur verði fenginn til að hafa eftirlit með jarðraski samfara framkvæmdunum.

Bandaríska sendiráðið var með starfsemi sína við Laufásveg þar til 2020 þegar hún var flutt á Engjateig. Húsnæðið var um tíma notað til að hýsa umsækjendur um alþjóðlega vernd.

Heimild: Ruv.is