Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar (UMSA), fyrir hönd Akureyrarbæjar, Norðurorku og Mílu óskar eftir tilboðum í jarðvegsskipti, jöfnun og malbikun, neysluvatnslagnir, lagningu fráveitulagna, rafstrengja, fjarskiptalagna og ídráttarröra í götur og stíga í Holtahverfi á Akureyri. Einnig í uppsetningu ljósastaura og tengikassa.

Helstu magntölur:
Uppúrtekt samtals um 12.000 m3
Fyllingar/burðarlög samtals um 14.000 m3
Malbikun götur, stígar og stéttar samtals um 22.000 m2
Stofnlagnir fráveitu um 600 m
Jarðstrengir rafveitu/gatnalýsingu um 1.500 m
Skurðir veitna um 2.000 m
Verkið er áfangaskipt og skal að fullu lokið fyrir 15. september 2027.
Útboðsgögn verða afhent rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar frá 12. febrúar 2026.
Hægt er að nálgast útboðsgögnin með því að smella HÉR!
Gögnin eru aðgengileg sjálfvirkt inn á þjónustugátt Akureyrarbæjar eftir að búið er að sækja um þau og eru þess vegna ekki send til bjóðanda sérstaklega.
Tilboðum skal skila á útboðsvef Akureyrarbæjar, eigi síðar en miðvikudaginn 4. mars kl. 11:15 og verða þau þá opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum, eða fulltrúum þeirra, sem þess óska.