Byggingarverktakar í suðurhluta Texas segja að aðgerðir bandarísku innflytjendastofnunarinnar hafi haft neikvæð áhrif á starfsemi þeirra við Rio Grande-dalinn.
Íbænum Monte Cielo, sem liggur við landamæri Mexíkó í suðurhluta Texas, má sjá fjölda ókláraðra húsa sem eru nú komin fleiri mánuðum á eftir áætlun en byggingarverktakar þar hafa verið í miklum erfiðleikum við að ráða verkamenn.
Á vef WSJ er farið ítarlega yfir stöðu mála við Rio Grande-dalinn þar sem fjölmargir verktakar og fyrirtæki sem vinna í byggingargeiranum hafa orðið fyrir barðinu á innflytjendastefnu bandarískra stjórnvalda.
Samkvæmt tölum frá Harvard Joint Center for Housing Studies samsvöruðu innflytjendur, bæði löglegir og ólöglegir, meira en helmingi allra starfsmanna í byggingargeiranum í Texas, Kaliforníu, New Jersey og Washington D.C.
Byggingarverktakar í suðurhluta Texas segja að hlutfallið þar sé mun hærra og hafa aðgerðir ICE undanfarna mánuði haft sýnileg áhrif á framkvæmdir á svæðinu. Nýjustu aðgerðir í Monte Cielo áttu sér stað fyrir nokkrum vikum sem leiddu til handtöku átta verkamanna.
Alejandro Garcia, einn af byggingarverktökunum í Monte Cielo, hefur reynt að ráða fleiri verkamenn til sín en fáir virðast vilja taka áhættuna, sama hversu há launin eru.
Framkvæmdastjóri South Texas Builders Association, Mario Guerrero, segir að aðgerðir ICE beinist nú gegn öllum innflytjendum sem vinna á svæðinu, bæði löglegum og ólöglegum. Guerrero, sem kaus Trump, segist styðja brottvísanir glæpamanna en bætir við að slíkar aðgerðir á vinnustöðum verði til þess að fólk verði hrætt við að mæta í vinnuna.
Steypufyrirtækið 57 Concrete, sem er með höfuðstöðvar í landamærabænum Mission í Texas, neyddist til að sækja um gjaldþrotavernd í desember í fyrra. Eliud Cavazos, forstjóri fyrirtækisins, segir að steypunotkun milli maí og nóvember í fyrra hafi dregist saman um 60% og segir að samdrátturinn tengist aðgerðum ICE.
Heimild: Vb.is












