Home Fréttir Í fréttum Ný byggð á lóð gamla Katóskólans

Ný byggð á lóð gamla Katóskólans

33
0
Nýbyggingin á lóð gamla Katóskólans fellur vel að byggð og er með sjávarútsýni. mbl.is/Eggert

Margir Hafnfirðingar muna eftir skóla St. Jósefssystra sem ávallt var kallaður Kató og stóð við Suðurgötuna á móti St. Jósefsspítala. Nú er búið að endurnýja Kató í Hafnarfirði með nýju 13 íbúða fjölbýlishúsi ásamt tveimur einbýlishúsum.

„Við fréttum af því að verkefnið væri í sölu í apríl 2024 og þá var búið að deiliskipuleggja svæðið og við skelltum okkur á þetta og keyptum svæðið,“ segir Baldur Björnsson, einn eigenda S44 og sá sem hafði yfirumsjón yfir framkvæmdinni.

„Við fengum Gunnar Pál Kristinsson hjá arkitektastofunni Rýma til að hanna þetta fyrir okkur, en við höfum unnið með honum áður og hann er mjög flinkur,“ segir Baldur og bætir við að það sé mikil kúnst að hanna svo vel sé inn í eldri hverfi svo heildarsvipur hverfisins haldi sér og nýbyggingin falli vel inn í umhverfið.

Heimild: Mbl.is