Home Fréttir Í fréttum 17.02.2026 Snæfells­nesvegur (54), Brúar­hraun – Hrauns­múli, endur­bætur

17.02.2026 Snæfells­nesvegur (54), Brúar­hraun – Hrauns­múli, endur­bætur

25
0
Snæfellsnesvegur. Mynd: Goggle Maps

Vegagerðin býður hér með út endurbyggingu á um 6 km kafla á Snæfellsnesvegi. Innifalið í endurbyggingunni er gerð fyllinga, útlögn styrktar- og burðarlags, útlögn tvöfaldrar klæðingar ásamt lögn ræsa og vinnslu og efnisútvegun efnis í burðar- og styrkarlög.

Helstu magntölur eru áætlaðar:
Þurrfræsing
48.400 m2
Fyllingar og fláafleygar
30.900 m³
Styrktarlag
23.670 m³
Burðarlag neðra lag
6.510 m³
Burðarlag efra lag
4.500 m³
Tvöföld klæðing
51.200 m2

Verkinu skal að fullu lokið fyrir  15. september 2026.

Útboðsgögn eru afhent rafrænt í TendSign útboðskerfinu. Afhending gagnanna er án endurgjalds, frá og með þriðjudeginum 3. febrúar 2026 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn  17. febrúar 2026.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og heildartilboðsupphæð.