Innifalið í kaupunum er félagið RAM ehf., sem er rekstrarfélag Hótel Kvosin.
Fasteignir að Kirkjutorgi 4, eða Kirkjuhvoll eins og hún hefur verið kölluð, og Templarasundi 3 í miðbæ Reykjavíkur voru seldar á 1.290 milljónir króna í lok síðasta árs. Innifalið í kaupunum er félagið RAM ehf., sem er rekstrarfélag Hótel Kvosin.
Seljandi er fasteignafélagið Þórsgarður ehf., sem er í eigu fjárfestisins Michael Jenkins. Kaupandi er félagið Kvosin ehf., sem er dótturfélag Laxamýrar ehf.
Undir samstæðu Laxamýrar falla meðal annars byggingafélagið Mannverk og Exeterhouse, rekstraraðili Exeter-hótelsins. Í fyrra seldi félagið fasteignir Exeter hótelsins til Heima. Félagið keypti þá Hótel Heklu af Íslandshótelum.
Samkvæmt kaupsamningi nam kaupverð húsnæðisins að Kirkjutorgi 705 milljónum króna en kaupverð húsnæðisins að Templarasundi nam 584 milljónum. Kaupverð félagsins sem heldur utan um rekstur Hótel Kvosin, RAM ehf., nam 500 þúsund krónum, eða sem nemur hlutafé félagsins.
Hótel Kvosin var opnað árið 2013, en um er að ræða 24 herbergja hótel, sem rekur einnig barinn Aldamót, áður Klaustur. Rekstrarfélag hótelsins velti tæplega 400 milljónum árið 2024 og hagnaðist um 28 milljónir.
Heimild: Vb.is












