
Mikið er umleikis um þessar mundir við byggingu íbúðarhúsnæðis í Hafnarfirði. Þar eru nú rúmlega 900 íbúðir á byggingarstigi; þar af 350 í Hamranesi sem allar eru í fjölbýlishúsum.
Byrjað var að steypa fyrir fyrstu byggingu á Hrauni vestur í síðustu viku en á þeim reit munu rísa 106 glæsilegar íbúðir. Í 4. hluta Áslandshverfis eru í byggingu 42 íbúðir í rað- og parhúsum og 50 einbýlishús.
Á sama svæði verður opnað fyrir úthlutun á 150 einbýlis-, par- og raðhúsalóðum á þessu ári. Gatnagerð í þessum hluta Áslands stendur nú yfir og verður svæðið tilbúið til byggingarframkvæmda í ágúst.
Einnig eru framkvæmdir farnar af stað við Hvaleyrarbraut og þar stendur til að frekari framkvæmdir hefjist á næstu mánuðum. Því til viðbótar er verið að vinna í uppbyggingarmálum tengdum Óseyrarhverfi og Flensborgarhöfn.
Heimild: Mbl.is











