Home Fréttir Í fréttum COWI Ísland með eina tilboðið undir kostnaðaráætlun í Fljótagöng

COWI Ísland með eina tilboðið undir kostnaðaráætlun í Fljótagöng

44
0
Myndin sýnir legu Fljótaganga. RÚV – Sigurður Kristján Þórisson

Vegagerðin og COWI Ísland undirrituðu í gær samning um for- og verkhönnun á Fljótagöngum sem liggja á milli Siglufjarðar og Stafár í Fljótum. Gert er ráð fyrir að for- og verkhönnun á göngunum verði lokið í nóvember 2026.

Vegagerðin og fyrirtækið COWI Ísland hafa gert með sér samning um for- og verkhönnun á Fljótagöngum.

Verkið felur meðal annars í sér for- og verkhönnun jarðganga, vega, tveggja brúa, hringtorgs, áningarstaðar og undirganga fyrir gangandi, hjólandi og ríðandi vegfarendur.

Fljótagöngum er ætlað að leysa Strákagöng af hólmi og veginn um Almenninga sem hefur sigið mikið síðustu ár. Þau verða 5,3 kílómetra löng og þarfnast verkið um 19 km vegagerðar utan ganga.

Fljótagöng eiga að liggja milli Nautadals í Fljótum og Hólsdals og stytta þau leiðina milli Fljóta og Ólafsfjarðar um 14 kílómetra. Þá stytta þau leiðina á milli Fljóta og Siglufjarðar um 10 kílómetra.

Útboðið var auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu og bárust tilboð frá þremur ráðgjafafyrirtækjum: Efla hf., COWI Íslandi og Norconsult ehf.

Að loknu mati á hæfni og verðtilboðum var COWI Ísland valið til verksins. Áætlaður kostnaður Vegagerðarinnar var 272.000.000 kr. og var tilboð COWI það eina sem var undir kostnaðaráætlun, eða 215.615.000 kr.

Heimild: Ruv.is