Home Fréttir Í fréttum Kaupa Norður­bakka 1 á 800 milljónir

Kaupa Norður­bakka 1 á 800 milljónir

96
0
Ljósmynd: Aðsend mynd

Félag í eigu Jóns Hilmars Karls­sonar er seljandi í við­skiptunum.

C Holding ehf., móðurfélag flutninga­fyrir­tækisins Tor­car­go, hefur undir­ritað kaup­samning um fast­eignina Norður­bakka 1 í Þor­láks­höfn af Faxa ehf. Sam­kvæmt kaup­samningnum er um að ræða at­vinnu­húsnæði á lóðinni Norður­bakki 1 og nemur kaup­verð 800 milljónum króna.

Jón Hilmar Karls­son, sonur Karls Werners­sonar, er eig­andi Faxa ehf.

Í samningnum kemur fram að af­hending eignarinnar eigi að fara fram 20. janúar 2026 og að út­gáfa af­sals sé miðuð við 10. mars 2026. Greiðslu­til­högun er tví­skipt; stærstur hluti kaup­verðs við af­hendingu og eftir­stöðvar við út­gáfu af­sals.

Eignin sem seld er er skráð sem byggð árið 2024 og er birt stærð hennar 3.297,9 fer­metrar. Í samningnum eru einnig til­greind opin­ber mats­verð, þar á meðal fast­eigna­mat og lóða­mat.

Faxar eignaðist Norður­bakka 1 haustið 2023, þegar Kambar af­salaði félaginu eigninni. Þá var kaup­verð til­greint 52 milljónir króna í af­sali.

Líkt og Við­skipta­blaðið greindi frá árið 2023 ákváðu Kambar að byggja glugga- og hurða­verk­smiðju í Þor­láks­höfn en fyrir­tækið var stofnað í byrjun árs 2022 þegar fyrir­tækin Sam­verk gler­verk­smiðja, Trésmiðjan Börkur og Glugga­smiðjan á Sel­fossi.

Árið 2020 hafði hluti af rekstri Sveina­tunga sam­einast við rekstur Samverks.

Karl Werner­son fjár­festir er stofnandi Kamba.

Samkvæmt tilkynningu frá félaginu árið 2023 var stað­setning verk­smiðjunnar í Þor­láks­höfn valin til að kol­efnis­sporið yrði sem minnst.

Heimild: Vb.is