Home Fréttir Í fréttum Ístak hefur tekið í notkun fyrstu 100% rafdrifnu stóru vinnuvélina sína

Ístak hefur tekið í notkun fyrstu 100% rafdrifnu stóru vinnuvélina sína

100
0
Mynd: Ístak hf.
Ístak hefur tekið í notkun fyrstu 100% rafdrifnu stóru vinnuvélina sína og líklega stærstu rafknúnu vinnuvél sem er í notkun á Íslandi í dag.
Mynd: Ístak hf.
Um er að ræða LiuGong 870 HE hjólaskóflu, sem mun sinna ámokstri í Stapafellsnámu og leysa af hólmi eldri dísilknúna Volvo hjólaskóflu.
Mynd: Ístak hf.
Með þessari breytingu má gera ráð fyrir allt að 34.000 lítra eldsneytissparnaði á ári, sem er stórt skref í átt að minni kolefnisspori.
Helstu upplýsingar um vélina:
– Þyngd: ~27 tonn
– Skóflustærð: 5,7 m³
– Rafhlaða: 423 kWh (LFP)
– Hleðsluhraði: 300 kW
– Ending rafhlöðu: 6–8 klst
Mynd: Ístak hf.
Með innleiðingu rafknúinna vinnuvéla styrkir Ístak vegferð sína í átt að ábyrgum, umhverfisvænum og sjálfbærum rekstri.
Heimild: Ístak hf.