VIÐHALD HÚSNÆÐIS HAFNARFJARÐARBÆJAR 2025, ENDURBÆTUR Á ÞAKI HVALEYRARSKÓLA.
Hafnarfjarðabær, Strandgötu 6, 220 Hafnarfirði, kt.: 590169-7579, auglýsir eftir tilboðum í verkið:
Viðhald húsnæðis Hafnarfjarðarbæjar 2026, endurbætur á þaki Hvaleyrarskóla.
Um er að ræða breytta útfærslu á þaki, þ.e. loka núverandi þakgluggum, setja gufuopið vatnsvarnarlag beint á núverandi borðaklæðningu og tvílekta þakið áður en klæðningu er komið á.
Útboðið er almennt opið útboð.
Helstu stærðir hússins:
- Verktaki á að endurnýja hluta þaksins eða um 1.250 m2 af 4.850 m2.
Helstu magntölur:
- Rif á þakklæðningu 1.250 m2.
- Rif á loftaefni innanhúss 1.438 m2.
- Nýtt rakavarnarlag innanhúss 1.260 m2.
- Nýr þakdúkur 1.300 m².
- Nýtt þakjárn 1.250 m2.
Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum, sem eru rafræn og verða aðgengileg á www.utbodsgatt.is/hafnarfjordur/endurbaetur-a-thaki-hvaleyrarskola-2026, mánudaginn 19. janúar 2026.
Tilboðum skal skila rafrænt undir vefslóð útboðsins, eigi síðar en 10. febrúar 2026, kl. 11:00, þar sem tilboð verða opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Hafnarfjarðarbær.












