Borgarbyggð auglýsir eftir tilboðum í endurnýjun vatnsrennibrauta í sundlaug Borgarness. Verkið felur í sér hönnun, innkaup og uppsetningu nýrra vatnsrennibrauta á núverandi undirstöður, ásamt fullnaðarfrágangi.
Helstu verkliðir:
- Hönnun og teikningagerð
- Aðstöðusköpun
- Niðurrif eldri búnaðar
- Vörukaup og tilheyrandi búnaður
- Uppsetning vatnsrennibrauta
- Fullnaðarfrágangur
Nýjar vatnsrennibrautir skulu tengjast núverandi stigahúsi og vera festar á núverandi undirstöður. Innifalið í verki er að útvega viðeigandi sæti fyrir rennibrautir og skila fullbúinni, rekstrarhæfri lausn með öllum hönnunargögnum.
Útboðsgögn verða aðgengileg hér á útboðsvef Borgarbyggðar, frá 15. janúar 2025.
Ef aðstoð vantar vegna aðgangs að Ajour, vinsamlegast hafið samband í tölvupósti: framkvaemdir@borgarbyggd.is.












