Home Fréttir Í fréttum 03.02.2026 Víðigrund, Sauðárkróki – Gatnagerð 2026

03.02.2026 Víðigrund, Sauðárkróki – Gatnagerð 2026

27
0
Á Sauðárkróki. Ljósmynd: Haraldur Guðjónsson

Skagafjörður og Skagafjarðarveitur óska eftir tilboðum í verkið .

Verkið felst m.a. í endurgerð fráveitulagna, götulýsingar, vatnsveitu og hitaveitu í götunni Víðigrund á Sauðárkróki, auk jarðvegsskipta í götunni, með malbikun akbrautar og gangstétta og gerð kantsteina.

Helstu magntölur:

  • Skurðgröftur, fráveita: 550 m
  • Fráveitulagnir, plast: 850 m
  • Skurðgröftur, vatns- og hitaveita: 380 m
  • Vatnsveitulagnir, plast: 380 m
  • Hitaveitulagnir, stál og plast: 330 m
  • Jarðvegsskipti: 500 m3
  • Jöfnunarlag: 385 m3
  • Malbik á akbrautir: 120 m2
  • Malbik á gangstéttar: 915 m2
  • Kantsteinar: 475 m

Opnunardagur tilboða er 30. janúar 2026.

Verkinu í heild skal lokið 31. október 2026.

Útboðsgögn verða afhent gjaldfrjálst á rafrænu formi frá og með 12. janúar 2026. Óska skal eftir útboðsgögnum í tölvupósti á netfangið stod@stodehf.is.