Home Fréttir Í fréttum Bilun í bruna­boða Edi­tion-hót­els­ins — engin hætta á ferðum

Bilun í bruna­boða Edi­tion-hót­els­ins — engin hætta á ferðum

14
0
Edition-hótelið við Austurbakka. RÚV / Ragnar Visage

Brunavarnarkerfi Edition-hótelsins við Austurbakka fór í gang laust fyrir klukkan eitt í nótt. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sendi einn dælubíl að hótelinu að sögn varðstjóra.

Á daginn kom að bilun varð í kerfinu sem var endurræst, engin hætta hafi því verið á ferðum. Á samfélagsmiðlum má sjá myndskeið af hópi fólks standa utan við hótelið og óm frá brunavarnarkerfinu berast út í næturkyrrðina.

Heimild: Ruv.is