Uppbygging fráveitukerfis Hafnar í Hornafirði hófst árið 2015 og er 1., 2., 3. og 4a. áfanga verksins lokið. Nú er komið að 4b. áfanga verksins sem þetta útboð felur í sér.
Lauslegt yfirlit yfir verkið
Uppbygging fráveitukerfis Hafnar í Hornafirði hófst árið 2015 og er 1., 2., 3., og 4a. áfanga verksins lokið. Nú er komið að 4b. áfanga verksins sem þetta útboð felur í sér.
Það felur í sér að koma fyrir skólplögn sem verður þrýstilögn frá núverandi enda úr 4a. áfanga við Sandbakkaveg, vestur meðfram göngustíg sem liggur sunnan við lóðirnar Sandbakki 1 og 3.
Þaðan kemur lögnin með að liggja í norður, vestan við Sandbakka 3, og síðan í norður eftir Sandbakka og kemur hún til með að tengjast nýrri skólpdælustöð vestan við Nýheima.
Einnig er um ræða skólplögn frá nýrri skólpdælustöð á Leiðarhöfða, suðaustan við lóðina Sandbakki 5, sem tengist inn á fyrrgreinda skólplögn sem liggur frá skólpdælustöð vestan við Nýheima.
Gröftur, frágangur og tengingar skólpdælustöðva er einnig inn í útboðinu. Síðan er um að ræða að koma fyrir skólplögn frá núverandi brunni vestan við Hagatún 2 og frá brunni á mörkum Sandbakkavegar og Kirkjubrautar að skólpdælustöð við Nýheima ásamt fráveitulögnum frá núverandi brunnum vestan við Nýheima, upp við Sandbakkaveg, og að skólpdælustöð vestan við Nýheima.
Einnig þarf að koma fyrir skólplögn frá núverandi lögnum vestan við Sandbakka 3 að dælustöð við Leiðarhöfða. Að lokum er um að ræða að koma fyrir nýjum götuniðurföllum í hluta Sandbakka og tengja við núverandi regnvatnslagnir í götunni.
Um er að ræða að grafa fyrir lögnum, þ.e. skólplögnum, dælustöðvum og götuniðurföllum, útvega lagnaefni, leggja lagnirnar, sanda kringum þær og fylla í lagnaskurð og jafna út fyllingu og ganga frá yfirborði.
Megnið af lagnaleiðinni er í götum sem þegar er búið að leggja og eru klæddar með bundnu slitlagi, klæðningu eða malbiki en að hluta til undir gangstétt/göngustíg sem þegar er búið að leggja og eru klædd með malbiki.
Einnig liggja lagnir á svæði sem er grasi gróið. Verkið inniheldur einnig sögun, rifi og förgun á klæðningu og malbiki sem getið er til í magnskrá.
Athuga skal að á stórum hluta vinnusvæðis gætir flóðs og fjöru og skal verktaki taka tillit til þess við vinnu sína, haga vinnu sinni eftir því og gera ráð fyrir því í einingarverðum sínum.
Útboðsgögn
Útboðsgögn, dagsett í desember 2025, og bera nafnið:
Uppbygging fráveitukerfis á Höfn – Jarðvinna og lagnir- 4b. áfangi og sundurliðast eftirfarandi:
- Útboðslýsing gerð af Verkhof ehf.
- Teikningar og verklýsingar gerðar af Verkhof ehf
- Tilboðseyðublað ásamt tilboðsskrá
Útboðsgögn fást afhent rafrænt án endurgjalds, með því að senda fyrirspurn á neðangreint netfang
og óska eftir því að fá send útboðsgögn í verkið „Uppbygging fráveitukerfi á Höfn – Jarðvinna og lagnir – 4b. áfangi“.
Þá verður fljótlega sendur hlekkur til baka á þann stað sem hægt verður að sækja gögnin. Ósk um útboðsgögn skal senda á: utboð@hornafjorður.is til vara vignir@hornafjordur.is Vinsamlegast takið fram í viðfangsefni pósts „Uppbygging fráveitukerfis á Höfn – Jarðvinna og lagnir – 4b. áfangi“.
Tilboð skulu berast fyrir 22. janúar 2025 kl.14:00.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Tilboð eru bindandi í 5 vikur frá opnunardegi.












