Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 18.12.2025 Garðabær. Þrír vellir – endurnýjun og nýtt gervigras

18.12.2025 Garðabær. Þrír vellir – endurnýjun og nýtt gervigras

8
0
Mynd: Garðabær

Garðabær óskar eftir tilboðum í endurnýjun gervigrass og fullnaðarfrágang á þremur völlum á svæði Stjörnunnar við Ásgarð þ.e. Samgsungvallar, Stekkjaflatavallar og nýs Flataskólavallar.

Garðabær óskar eftir tilboðum í endurnýjun gervigrass og fullnaðarfrágang á þremur völlum á svæði Stjörnunnar við Ásgarð þ.e. Samgsungvallar, Stekkjaflatavallar og nýs Flataskólavallar.

Verkið felst í rifi og förgun hjá viðurkenndum förgunaraðila á núverandi gervigrasi á Samsung- og Stekkjaflatavelli ásamt útvegun gervigrass og niðurlögn á völlunum þremur með tilheyrandi frágangi.

Helstu þættir verksins eru:

  • Upprif, flutningur og förgun á núverandi yfirborði alls um 15.298 m2
  • Samsungvöllur 76×113 m
  • Stekkjaflatavöllur 61×110 m
  • Nýtt gervigrasyfirborð alls um 24.114 m2
  • Samsungvöllur 76×113 m
  • Stekkjaflatavöllur 61×110 m
  • Flataskólavöllur 76×116 m

Skiladagar verksins eru eftirfarandi:
Samsungvöllur: 30. apríl 2026
Aðrir vellir skv. nánara samkomulagi.

Útboðsgögn eru öllum aðgengileg með rafrænum hætti, án endurgjalds, á útboðsvef VSÓ Ráðgjafar á vefslóðinni vso.ajoursystem.net/ frá og með fimmtudeginum 4. desember 2025.

Tilboðum skal skilað með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef eigi síðar en fimmtudaginn 18. desember 2025 kl. 14.00.