Samgönguáætlun til ársins 2040 var afgreidd á ríkisstjórnarfundi í dag. Hún verður að öllum líkindum gerð opinber á blaðamannafundi á morgun.
Fimm ár eru frá því samgönguáætlun var síðast samþykkt á Alþingi. Það er ekki síst vegna þess hve langt er síðan að töluverð spenna ríkir eftir þeirri nýju.
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur boðað nýja forgangsröðun í jarðgangamálum þar sem ekki yrði hægt að ganga að því sem vísu að næstu jarðgöng verði á Austurlandi. Samkvæmt gildandi áætlun eru Fjarðarheiðargöng, milli Seyðisfjarðar og Fljótsdalshéraðs, næst í röðinni en Eyjólfur hefur ítrekað að stjórnvöld séu ekki bundin af fyrri áætlunum.
Heimild: Ruv.is












