Home Fréttir Í fréttum Á­forma vinnu­vélar í Hvalárvirkjun í vor

Á­forma vinnu­vélar í Hvalárvirkjun í vor

13
0
Birna Lárusdóttir, talsmaður Vesturverks og upplýsingafulltrúi HS Orku, er ánægð með dóm Hæstaréttar. Bjarni Einarsson

Vesturverk stefnir að því að hefja undirbúningsframkvæmdir vegna Hvalárvirkjunar á Ströndum næsta vor eftir að Hæstiréttur hafnaði kröfu virkjunarandstæðinga um að jörðin Drangavík ætti hluta af vatnasviði virkjunarinnar. Fleiri kærumál eru hins vegar í gangi.

Í fréttum Sýnar var rifjað upp að deilur um 55 megavatta Hvalárvirkjun í Ófeigsfirði hafa staðið yfir meira og minna í áratug. Dómsmál hluta eigenda eyðijarðarinnar Drangavíkur var nýjasta tilraun andstæðinga til að hindra áform Vesturverks.

„Við erum vitaskuld ánægð með niðurstöðu Hæstaréttar í vikunni. Dómurinn þýðir það að við getum haldið áfram ótrauð undirbúningi framkvæmda við Hvalárvirkjun,“ segir Birna Lárusdóttir, talsmaður Vesturverks og upplýsingafulltrúi HS Orku.

Fyrirhugað er að koma upp vinnubúðum, leggja vegi og hefja rannsóknarboranir á heiðinni vegna stíflustæða og jarðganga.

Frá vegagerð Vesturverks í Ingólfsfirði á Ströndum sumarið 2019 í tengslum við Hvalárvirkjun.
KMU

„Ef allar áætlanir ganga eftir gætum við hafið undirbúningsframkvæmdirnar í vor eða sumar og síðan bara haldið á í beinu framhaldi af því,“ segir Birna.

Kærumálum virðist þó hvergi nærri lokið.

„Við fengum nýverið framkvæmdaleyfi fyrir þessum undirbúningsframkvæmdum frá hreppsnefnd Árneshrepps og það leyfi hefur verið kært. Þannig að við getum í rauninni ekki sagt á þessum tímapunkti hvenær botn fæst í það kærumál – eða þau kærumál sem koma fram.“

En hvenær gæti virkjunin verið tilbúin?

„Ef að – enn og aftur – allar óskir okkar rætast, þá gætum við gangsett Hvalárvirkjun 2030 eða 2031. En það eru ennþá dálítið margar hindranir í vegi til þess að við getum slegið því föstu.“

Birna segir að með Hvalárvirkjun yrðu Vestfirðir sjálfbærir í raforkuframleiðslu.

„Ég held að það sé engum blöðum um það að fletta að Hvalárvirkjun mun stórbæta afhendingaröryggi raforku á Vestfjörðum. Um þetta eru bara allir sammála.“

Heimild: Visir.is