Fjórða byggingarfélagið stofnar húsnæðissjóð í tengslum við eigin íbúðarverkefni.
Byggingarfélagið Safír hefur stofnað fjárfestingarsjóðinn Safír20 sem býður kaupendum að íbúðum á Orkureitnum þann valkost að sjóðurinn leggi til allt að 20% af kaupverði eignar á móti a.m.k. 10% framlagi íbúðarkaupanda.
Um er að ræða fjórða sjóðinn af þessu tagi sem byggingarfyrirtæki hér á landi setur á fót í tengslum við eigin íbúðarverkefni. Verkefnin eru unnin í samstarfi við Stefni, dótturfélag Arion banka.
Safír segir að þeir íbúðarkaupendur sem kjósi þennan valkosti þurfi að hámarki að standast greiðslumat á 70% af kaupverði íbúðarinnar sem hann fjármagnar hjá banka eða lífeyrissjóði. Íbúðakaupandi sem er eigandi að amk. 80% íbúðarinnar hafi fullan umráðarétt yfir íbúðinni og geti keypt eignarhlut sjóðsins seinna út á matsverði.
„Með þessum nýja fjárfestingarsjóði þurfa kaupendur einungis að greiða 10% og standast greiðslumat fyrir 70% láni til að eignast heimili. Ef kaupandi á 10% útborgun getur þannig Safír20 brúað bilið fyrir fólk án þess að það þurfi að safna fyrir hærri útborgun eða greiða háa vexti af viðbótarláni,” segir Hilmar Ágústsson, framkvæmdastjóri byggingafélagsins Safír.
„Seinna þegar betur árar á lánamörkuðum geta síðan íbúðarkaupendur endurfjármagnað og eignast íbúð sína að fullu. Það hlýtur að vera loka markmiðið hjá flestum. Þá erum við einnig að bjóða upp á fjármögnunarleið sem hjálpar einstaklingum að festa sér draumaíbúðina á föstu verði.“
Býðst að festa verð og greiða 2% staðfestingargjald
Íbúðakaupendum á Orkureitnum býðst einnig að festa verð og greiða 2% staðfestingargjald til að tryggja sér íbúð í byggingu sem afhent verður næsta sumar.
„Íbúðareigendur geta tvinnað saman Safír20 og 2% staðfestingargjaldi og þannig undirbúið auðveldari leið inn á markaðinn með skýran tímaramma, fast verð og minna eigin fjár framlag. Þannig má festa sér íbúð og safna upp 10% eigin fé fram á næsta sumar,“ segir Hilmar.
Hann segir fjármögnun með Safír20 henta fyrstu kaupendum vel en bætir við að lausnin standi öllum til boða.
„Það gæti verið hentugt fyrir marga að festa sér strax draumaíbúðina gegn 2% greiðslu í einni af Svansvottuðu íbúðunum á Orkureitnum. Auk þess hentar þetta vel fyrir fólk sem komið er yfir miðjan aldur þar sem tekjurnar hafa mögulega lækkað en fólk vill engu að síður losa fjármuni úr íbúðarhúsnæði til að nota í annað.“
455 íbúðir byggðar á Orkureitnum
Safír segir að ef eignin hækkar í verði vegna markaðsaðstæðna þá fái kaupandi ábata af sínum 80% eignarhlut við sölu að frádreginni uppsafnaðri leigu og eftirstöðvum fasteignarláns ef það er til staðar. Safír20 fær ábata af sínum 20% eignarhlut. Kaupandi greiðir Safír20 5% verðtryggða leigu á ári fyrir afnot af eignhluti sjóðsins.
Ef eignin lækkar í verði skiptist tapið hlutfallslega eftir eignarhlutföllum. Leigan falli hins vegar niður ef eigið fé íbúðareiganda við sölu stendur ekki undir leigunni eftir að fasteignalán hefur verið greitt upp.
Yfir 455 íbúðir verða byggðar á Orkureitnum. Byrjað var að afhenta fyrstu íbúðir haustið 2024 og stefnt er að því að allri uppbyggingu á svæðinu verði lokið árið 2028.
S
Safír20 sjóðurinn er hýstur og rekinn af eignastýringarfélaginu Stefni, dótturfélagi Arion banka. Stefnir er eftirlitsskyldur aðili sem vinnur samkvæmt skilmálum Seðlabanka Íslands.
„Með þessari nýju fjármögnunarleið viljum við senda jákvæða strauma inn á fasteignamarkaðinn og gefa fleirum raunverulegan kost á að eignast íbúð í Reykjavík. Ég hvet alla sem eru að velta fyrir sér fasteignakaupum til að skoða þennan möguleika,” segir Hilmar að lokum.
Heimild: Vb.is












