Home Fréttir Í fréttum 16.12.2025 Fljóta­göng (76) og aðliggj­andi vegir, hönn­un og mat á umhverf­isáhrif­um

16.12.2025 Fljóta­göng (76) og aðliggj­andi vegir, hönn­un og mat á umhverf­isáhrif­um

27
0
Teikning Vegagerðarinnar af fyrirhuguðum jarðgöngum milli Fljóta og Siglufjarðar. Tveir möguleikar, táknaðir með blárri og rauðri punktalínu, eru sýndir á legu ganganna og vegtengingum. Vegagerðin

Vegagerðin býður hér með út for- og verkhönnun Fljótaganga, aðliggjandi vega og gerð mats á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar.

Innifalið í verkefninu er m.a. hönnun jarðganga, vega, tveggja brúa, hringtorgs, eins áningarstaðar, einna undirganga fyrir gangandi, hjólandi og ríðandi vegfarendur, gerð verklýsingar fyrir útboðsgögn verkframkvæmdar og gerð skýrslu fyrir mat á umhverfisáhrifum.

Aðlögun núverandi tenginga og heimreiða að nýjum vegi er hluti af verkinu. Framkvæmdin er matsskyld og felur verkefnið í sér gerð umhverfismats og skýrslu.

Val ráðgjafa fer fram á grundvelli hæfnisvals og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfni bjóðanda og verðtilboð.

Verkinu skal að fullu lokið í nóvember 2026.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með miðvikudeginum 11. desember 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 28. janúar 2025.

Ekki verða haldnir sérstakir opnunarfundir en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu. Þann 6. fjanúar 2026 verður bjóðendum tilkynntar niðurstöður stigagjafar og verðtilboð hæfra bjóðenda.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.