Skrifstofa fjármálaþjónustu og ráðgjafar óskar eftir aðilum til þátttöku í Rammasamningur um Húsasmíðameistara og aðalverktaka. Um er að ræða rammasamning sem byggir á lögum um opinber innkaup nr. 120/2016.
Um er að ræða almennt útboð á rammasamningi þar sem hvaða fyrirtæki sem er getur lagt fram tilboð. Rammasamningsútboð þetta er ekki loforð um ákveðið magn viðskipta. Hámark samanlagðra viðskipta er kr. 10.000.000.000,- á grundvelli þessa samnings.
Þetta verkefni er til prufu til 1 árs, ef vel gengur er stefnt að því að bjóða aftur út að ári liðnu.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:00 þann 10. nóvember 2025.
Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 11. desember 2025.
Haldinn verður upplýsingafundur þar sem farið verður yfir samninginn og bjóðendur geti spurt spurninga. Fundurinn verður á teams 19. nóvember kl. 14:00.
Auðkenni fundar: 393 459 666 244
Lykilorð: Le9kK6wj












