„Arkitektar þurfa að þora að taka þátt í því að breyta,“ segir Arnhildur Pálmadóttir sem er arkitektinn á bak við félagsbústaðina við Háteigsveg 59. Húsið er tilnefnt til hönnunarverðlauna Íslands sem verða afhent á fimmtudag.
Nýir félagsbústaðir við Háteigsveg 59 hafa skapað heitar umræður um arkitektúr. Arkitektinn á bak við verkið, Arnhildur Pálmadóttir, fagnar umræðunni og segir arkitekta þurfa að þora að taka þátt í breytingum.
„Bygging er ekki bara bókarkápa, þetta er bók, það þarf að lesa bókina líka til að skilja húsið,“ segir Arnhildur í Víðsjá á Rás 1.
Húsið er klætt með endurunnum við sem hefur verið brenndur að japönskum hætti, og hönnunin er tilnefnd til hinna alþjóðlegu Mies van der Rohe-verðlauna og til Hönnunarverðlauna Íslands sem verða afhent á fimmtudag. Arnhildur og stofa hennar s.ap arkitektar eru fulltrúar Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr í ár. Arnhildur hlaut Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs í fyrra.
„Arkitektar þurfa að þora að taka þátt í því að breyta, það þarf að breyta svo miklu núna hvernig við byggjum, í tengslum við loftslagsmál. Við megum ekki vera hrædd. Og ég held að það sé mjög mikilvægt að fólk tali um húsin okkar.“
Heimild: Ruv.is












