Hafnir Múlaþings óska eftir tilboðum í verkið „Borgarfjörður eystri, endurbygging Löndunarbryggju 2025“.
Helstu verkþættir eru:
- Brjóta og fjarlæga gamla þekju um 330 m2.
- Jarðvinna fyrir landvegg, undirstöðu og þekju.
- Steypa 34 m landvegg, 8 undirstöður og 95 m2 þekju
- Reka niður 27 bryggjustaura úr harðviði.
- Smíði á um 300 m² af bryggju úr harðviði.
- Uppsetning á 50 stk DD250 þybbum á bryggju.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. september 2026.
Útboðsgögn eru afhent rafrænt í TendSign útboðskerfinu. Afhending gagnanna er án endurgjalds, frá og með miðvikudeginum 22. október 2025.
Tilboði skal skila rafrænt í TendSign útboðskerfinu fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 11. nóvember 2025.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.