19.8.2016
Vegagerðin og Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu auglýsa eftir þátttakendum í forvali vegna greiningar umferðarástands á stofnvegakerfi höfuðborgarsvæðisins, eins og það er í september til október árið 2016.
Greiningunni er ætlað að varpa ljósi á umferðaraðstæður á annatímum á 37 gatnamótum og götuköflum þeim tengdum.
Heiti verkefnisins er:
Stofnvegakerfi höfuðborgarsvæðisins
Umferðargreining 2016
Forvalsgögn verða send í tölvupósti þeim sem óska eftir að taka þátt í forvali frá og með mánudeginum 22. ágúst 2016. Óskir um forvalsgögn skal senda á póstfangið:
jonas.snaebjornsson@vegagerdin.is
með upplýsingum um nafn fyrirtækis, nafn tengiliðar ásamt tölvupóstfangi og símanúmeri.
Skila skal útfylltum forvalsgögnum á minnislykli og pappír í lokuðu umslagi merktu á eftirfarandi hátt til Vegagerðarinnar Borgartúni 7 (móttaka) í síðasta lagi þriðjudaginn 6. september 2016, kl. 14:00.
Vegagerðin, móttaka
Borgartúni 7
105 Reykjavík
Stofnvegakerfi höfuðborgarsvæðisins
Umferðargreining 2016
Forval
Kl. 14:15 sama dag verða tilboðin opnuð að viðstöddum þeim umsækjendum sem þess óska.
Nöfn umsækjenda verða lesin upp á þeim fundi.
Reykjavík í ágúst 2016
Vegamálastjóri