Ríkiskaup fyrir hönd Isavia ohf. óska eftir áhugasömum aðilum til að taka þátt í opnu útboði vegna Stækkunar Suðurbyggingar Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar til norðurs (SSN16). Verkið felst í endurinnréttingu á um 2.000m2 í Suðurbyggingu og 7.000 m2 viðbyggingu til norðurs á þremur hæðum. Vinna verktaka felst í allri stálsmíði vegna innri frágangs.
Helstu magntölur eru:
Sökklar (árekstrarvarnir) 450 m
Glerveggir úr samlímdu gleri og stálprófílum 700 m2
Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum á vef Ríkiskaupa.