Ríkiskaup fyrir hönd Isavia ohf., óska eftir áhugasömum aðilum til að taka þátt í opnu útboði vegna Stækkunar Suðurbyggingar Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar til norðurs (SSN16). Verkið felst í endurinnréttingu á um 2.000m2 í Suðurbyggingu og 7.000 m2 viðbyggingu til norðurs á þremur hæðum. Vinna verktaka felst í öllu múrverki vegna innri frágangs.
Helstu magntölur eru:
Flotun gólfa 2.300 m2
Gólfflísar 3.900 m2
Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum á vef Ríkiskaupa.