Ingveldur Ásta Björnsdóttir hefur verið ráðin forstjóri Atlas verktaka og hóf störf í október.
Í tilkynningu segir að Ingveldur komi til Atlas verktaka frá Reitum fasteignafélagi þar sem hún hafi starfað sem framkvæmdastjóri viðskiptavina og þjónustu.
Hún hefur áður starfað hjá Íslandsstofu og Arion banka og býr yfir víðtækri reynslu af fjármálum, rekstri og þjónustu.
Hún er viðskiptafræðingur og með meistaragráðu í verkefnastjórnun (MPM) frá Háskólanum í Reykjavík. Ingveldur situr í stjórnum Odda hf., Gadus nv. og Travel West ehf.,“ segir í tilkynningunni.
Um Atlas verktaka segir að um sé að ræða alhliða verktakafyrirtæki með áralanga reynslu í byggingaframkvæmdum, endurbótum og mannvirkjagerð. „Atlas verktakar sinna heildarábyrgð á verkum frá undirbúningi til verkloka og þjónustar fyrirtæki, fasteigna- og leigufélög, stofnanir og sveitarfélög. Hjá félaginu starfa hátt í 200 starfsmenn.“
Heimild: Visir.is