
Fjórir eru látnir eftir að bygging í miðborg Madríd, höfuðborgar Spánar, hrundi í gær.
Tvö lík fundust seint í gærkvöld nærri Plaza Mayor, vinsælum ferðamannastað, nokkrum klukkustundum eftir að byggingin hrundi að hluta til. Slökkviliðsmenn fundu hin tvö í nótt að sögn borgarstjórans Jose Luis Martinez-Almeida.
„Allar okkar samúðarkveðjur og stuðningur fara til fjölskyldna, vina og samstarfsfólks fórnarlambanna á þessum erfiðu tímum,” skrifar borgarstjórinn í færslu á samfélagsmiðlinum X.

Að sögn spænsku neyðarþjónustunnar voru fórnarlömbin þrír karlar sem unnu á svæðinu og ein kona sem hafði umsjón með framkvæmdunum. Spænskir fjölmiðlar greindu frá því að verkamennirnir væru frá Malí, Gíneu og Ekvador.
Byggingin, sem áður hýsti skrifstofur, var í endurbyggingu og átti að verða hótel. Hún var sex hæðir og um 6.700 fermetrar að flatarmáli.
Heimild: Mbl.is