Þann 6.október var opnun í forvali vegna pípulagnavinnu í kjallara K2 til fjórðu hæðar meðferðarkjarna.
Forval þetta nær til neysluvatnslagna, þrifatækja, frárennslislagna, hitalagna, kælilagna og slökkvikerfa. Auk þessa er gert ráð fyrir að lagnaverktaki geti séð um uppsetningu s.k. lyfjaloftslagna kjósi verkkaupi að fella þann verkþátt inn í pípulagnaútboðið.
Stærð nýs meðferðarkjarna er um 70 þúsund fermetrar sem skiptast á átta hæðir, þar af tvær hæðir neðanjarðar. Útboð þetta tekur til allt að 55 þúsund fermetra í meðferðarkjarnanum en megin hluti legudeilda á 5.-6. hæð er undanskilinn. Verktaki mun sjá um að leggja í öll lagnaskökt upp í gegnum 5. og. 6 .hæð og út um þak.
Ákveðin sérmerkt rými verða þó ekki hluti af frágangi þessa útboðs þar sem fullnaðarhönnun þeirra er ekki lokið eða ákvarðanir hafa ekki verið teknar um útfærslu frágangs. Í þeim tilfellum er miðað við að verktaki annist tengingar að þessum rýmum skv. nánari skilgreiningu sem koma mun fram í útboði.
Þáttökubeiðnir bárust frá eftirtöldum aðilum:
1. Aðallagnir ehf
2. AH pípulagnir
3. Alhliða pípulagnir
4. Landslagnir
5. Rennsli
Frávikstilboð voru ekki heimil samkvæmt útboðsgögnum og pnunarskýrsla felur ekki í sér niðurstöðu útboðs. Í opnunarskýrslu er einungis birt heildartilboðsfjárhæð en endanlegt val getur ráðist af fleiri valforsendum samkvæmt útboðsgögnum.
Heimild: NLSH ohf.