Þann 3.október var opnun í forvali vegna loftræsingar í kjallara K2 til fjórðu hæðar í meðferðarkjarna.
Gert er ráð fyrir að pípulagnir vegna neysluvatnslagna, þrifatækja, frárennslislagna, hitlagna, kælilagna og slökkvikerfa verði boðnar út í sérstöku útboði og nær forval þetta því til loftræsihluta í lagnakerfi hússins.
Þáttökubeiðnir bárust frá eftirtöldum aðilum:
- 1. Stjörnublikk ehf.
- 2. Blikksmiðurinn hf.
- 3. Ísloft ehf.
- 4. Blikksmíði ehf.
Stærð nýs meðferðarkjarna er um 70 þúsund fermetrar sem skiptast á 8 hæðir, þar af 2 hæðir neðanjarðar. Útboð þetta tekur til allt að 55 þúsund fermetra í meðferðarkjarnanum en megin hluti legudeilda á 5.-6. hæð er undanskilinn.
Verktaki mun sjá um að leggja í öll lagnaskökt upp í gegnum 5. og. 6 .hæð og út um þak. Ákveðin sérmerkt rými verða þó ekki hluti af frágangi þessa útboðs þar sem fullnaðarhönnun þeirra er ekki lokið eða ákvarðanir hafa ekki verið teknar um útfærslu frágangs. Í þeim tilfellum er miðað við að verktaki annist tengingar að þessum rýmum skv. nánari skilgreiningu sem koma mun fram í útboði.
Verkkaupi áskilur sér rétt til að gera samning við verktaka um viðbótarverk, s.s. um frágang á þeim sérmerktu svæðum í meðferðarkjarna sem ekki eru hluti af útboði þessu og eftir atvikum öðrum þeim loftræsilagnaverkum sem nauðsynlegt er að framkvæma í samræmi við heimildir í lögum.