Home Fréttir Í fréttum Reykjavíkurborg tekur í notkun nýtt viðmót byggingarleyfa

Reykjavíkurborg tekur í notkun nýtt viðmót byggingarleyfa

60
0
Mynd: HMS.is

Reykjavíkurborg hefur tekið í notkun nýtt og notendavænt umsóknarviðmót byggingarleyfa í samstarfi við HMS. Með því bætist Reykjavík við hóp 14 sveitarfélaga sem þegar hafa tengst viðmótinu.

Viðmótið, sem er aðgengilegt á byggingarleyfi.hms.is, einfaldar og samræmir ferlið við umsókn og útgáfu byggingarleyfa. Nú eru sveitarfélög sem innihalda 44,8% íbúða á landinu tengdar við kerfið, sem veitir betri yfirsýn yfir stöðu uppbyggingar á Íslandi og stuðlar að vandaðri mannvirkjagerð til framtíðar.

Hvað breyt­ist?

  • Umsóknir sem áður voru í vinnslu á Mínum síðum HMS (eldri umsóknarleið) hafa verið færðar yfir í nýja kerfið.
  • Framkvæmd og skil á áfangaúttektum fara áfram í gegnum Mannvirkjaskrá.
  • Lokað hefur verið fyrir umsóknir og úttektir í gegnum eldri umsóknarleið á Mínum síðum HMS.

Kynntu þér allt um verkefnið Byggingarleyfi á Íslandi allt á einum stað.

Heimild: HMS.is