Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 14.10.2025 Akra­nes, sjóvarn­ir 2025

14.10.2025 Akra­nes, sjóvarn­ir 2025

81
0
Mynd: Akraneskaupstaður

Vegagerðin býður hér með út verkið „Akranes, sjóvarnir 2025.” Um er að ræða sjóvarnir á tveimur stöðum á Akranesi: 30 m lenging sjóvarnar við dæluhúsið á Ægisbraut og hækkun og styrking sjóvarnar á 200 m löngum kafla á sjóvörn við Krókalón.

Heildarlengd sjóvarna er um 230 m, flokkað grjót og kjarni, samtals um 2.300 m³.

Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. mars 2026.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með þriðjudeginum 30. september 2025 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 14. október  2025.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.