Home Fréttir Í fréttum Forval vegna loftræsingar frá kjallara til fjórðu hæðar meðferðarkjarna Nýs Landspítala

Forval vegna loftræsingar frá kjallara til fjórðu hæðar meðferðarkjarna Nýs Landspítala

44
0

Þessa daga stendur yfir forval þar sem óskað er eftir umsóknum um þátttökurétt í lokuðu útboði á loftræsingu í kjallara til fjórðu hæðar meðferðarkjarna.

Gert er ráð fyrir að pípulagnir s.s.vegna neysluvatnslagna, þrifatækja, frárennslislagna, hitalagna, kælilagna og slökkvikerfa verði boðnar út í sérstöku útboði og nær forval þetta því til loftræsihluta í lagnakerfi hússins.

Stærð nýs meðferðarkjarna er um 70 þúsund fermetrar sem skiptast á átta hæðir, þar af tvær hæðir neðanjarðar. Útboð þetta tekur til allt að 55 þúsund fermetra í meðferðarkjarnanum en megin hluti legudeilda á fimmtu og sjöttu hæð er undanskilinn.

Verktaki mun sjá um að leggja í öll lagnaskökt upp í gegnum fimmtu og sjöttu hæð og út um þak. Ákveðin sérmerkt rými verða þó ekki hluti af frágangi þessa útboðs þar sem fullnaðarhönnun þeirra er ekki lokið eða ákvarðanir hafa ekki verið teknar um útfærslu frágangs. Í þeim tilfellum er miðað við að verktaki annist tengingar að þessum rýmum skv. nánari skilgreiningu sem koma mun fram í útboði.

Verkkaupi áskilur sér rétt til að gera samning við verktaka um viðbótarverk, svo sem um frágang á þeim sérmerktu svæðum í meðferðarkjarna sem ekki eru hluti af útboði þessu og eftir atvikum öðrum þeim loftræsilagnaverkum sem nauðsynlegt er að framkvæma í samræmi við heimildir í lögum um opinber innkaup.

Opnun á forvalinu er 3.október.

Heimild: NLSH ohf.