Home Fréttir Í fréttum Fyrirtækjum í byggingariðnaði fjölgar milli ára

Fyrirtækjum í byggingariðnaði fjölgar milli ára

28
0
Mynd: HMS.is

Fyrirtækjum í byggingariðnaði fjölgaði á fyrri hluta þessa árs. Þetta má lesa út úr tölum Hagstofu um nýskráningar og gjaldþrot fyrirtækja í atvinnurekstri.

Færri fyrirtæki urðu gjaldþrota á fyrri hluta ársins eða 135 samanborið við 145 fyrirtæki sem urðu gjaldþrota á fyrri hluta ársins 2024. Nýskráningar voru álíka margar í fyrra eða 283 talsins.

Nýskráningar umfram gjaldþrot voru því 147 á fyrstu sex mánuðum ársins samanborið við 138 á sama tíma í fyrra. Fjölgun fyrirtækja bendir til þess að töluverð virkni sé enn í greininni en hlutfall lausra starfa í hagkerfinu er hæst í byggingariðnaði.

 

Um ein af hverj­um sex ný­skrán­ing­um fyr­ir­tækja í bygg­ing­ar­iðn­aði

Á fyrri hluta þessa árs voru nýskráð 1.765 fyrirtæki í atvinnurekstri. Þar af voru flestar nýskráningar í byggingarstarfsemi, eða 282, sem jafngildir um einni af hverjum sex nýskráningum allra fyrirtækja í hagkerfinu.  Lesa má nánar um þróun í byggingariðnaði í nýjustu mánaðarskýrslu HMS sem kom út í síðustu viku.

Heimild: HMS.is