Home Fréttir Í fréttum Danskir bankar hrista upp í húsnæðislána­kerfinu

Danskir bankar hrista upp í húsnæðislána­kerfinu

58
0
Carsten Egeriis forstjóri Danske Bank.

Breytingin getur lækkað greiðslubyrði um 12,5% á mánuði.

Stærstu bankar Dan­merkur, Danske Bank og Nor­dea, eru byrjaðir að bjóða húsnæðislán á mun betri kjörum en áður en þó ein­göngu fyrir efnuðustu við­skipta­vini sína.

Sam­kvæmt danska við­skipta­miðlinum Børsen gæti þessi þróun breytt húsnæðis­fjár­mögnun í Dan­mörku til fram­búðar.

Danskir bankar hafa frá 2003 haft heimild til að veita svo­kölluð bankalán til húsnæðis­kaupa (d. bank­boli­glån) í stað hefðbundinna veðlána (d. real­kreditlån).

Hingað til hafa þau þó að mestu verið notuð til að fjár­magna þann hluta kaup­verðs sem ekki fæst veðlán fyrir – þ.e. yfir 80% af fast­eigna­verði.

Danskir fasteignakaupendur hafa í dag tvær meginleiðir til fjármögnunar: veðlán (realkreditlån) og bankalán til fasteignakaupa (bankboliglån).

Veðlán eru veitt af sérhæfðum lánastofnunum og fjármögnuð með skuldabréfaútgáfu. Þau bjóða upp á föst og gagnsæ kjör sem eru jöfn fyrir alla.

Bankalán eru veitt beint af bönkum og fjármögnuð með innlánum og öðrum leiðum. Kjörin eru samningsatriði, því geta þeir sem teljast traustir viðskiptavinir fengið mun betri kjör.

Veðlán hafa hingað verið þau lán sem flestir taka til að fjármagna íbúðarkaup. Nú vilja stærstu bankarnir breyta því.

Danske Bank og Nor­dea hafa aukið vægi beinna bankalána til húsnæðis­kaupa og bjóða þeim sem teljast góðir við­skipta­vinir, fólki með háar tekjur, góðar eignir og litla áhættu betri kjör.

Sam­kvæmt út­reikningum Børsen getur lán­taki sem kaupir íbúð fyrir 5,6 milljónir danskra króna og fjár­magnar 80% með bankaíbúðar­láni sparað allt að 30.000 DKK á ári miðað við veðlán.

Það sam­svarar allt að 12,5% lægri greiðslu­byrði á mánuði fyrir tekju­hæstu við­skipta­vini bankans.

Bankalán til íbúðar­kaupa hafa verið að aukast til muna í Dan­mörku en Nor­dea veitti íbúðar­lán fyrir 23 milljarða danskra króna í júní 2025, eftir 20% aukningu milli ára. Á sama tíma drógust veðlán þeirra saman úr 294 í 286 milljarða danskra króna.

Danske Bank jók bankalán sín um 27%, úr 46 í 58 milljarða DKK, á meðan lána­safn Real­kredit Dan­mark (sem bankinn á) lækkaði um 13 milljarða og stendur nú í 409 milljörðum danskra króna.

„Við viljum vera banki fyrir alla íbúðar­kaup­endur í Dan­mörku, hvort sem þeir kjósa veðlán hjá Real­kredit Dan­mark eða íbúðar­lán hjá Danske Bank,“ segir Carsten Egeriis, for­stjóri Danske Bank.

Nykredit, stærsti veðlána­veitandi Dan­merkur, varar við þróuninni.

For­stjórinn Michael Rasmus­sen segir að bankaíbúðar­lán henti fyrst og fremst betur settu fólki en að veðlán séu áfram „ódýrasta, gegnsæjasta og öruggasta fjár­mögnunin fyrir lang­flesta“.

„Við verðum að tryggja að komandi kynslóðir, og sér­stak­lega fyrstu kaup­endur, hafi áfram að­gang að hag­kvæmum veðlánum, óháð eignum, póstnú­meri eða launa­tekjum.“

Heimild: Vb.is