Home Fréttir Í fréttum 12.08.2025 Vatns­dals­vegur (722), Hring­vegur – Flaga

12.08.2025 Vatns­dals­vegur (722), Hring­vegur – Flaga

71
0
Mynd: mbl.is/Höskuldur B. Erlingsson

Vegagerðin býður hér með út endurbætur á Vatnsdalsvegi (722) frá vegamótum við Hringveg að landi Flögu,  heildarlengd útboðskaflans er um 9,0 km.

Verkið felst í endurbyggingu á núverandi vegi, gerð styrktar- og burðarlaga sem og lagningu bundins slitlags. Núverandi vegur er jafnframt breikkaður. Innifalið í verkinu er gerð vegtenginga og allur frágangur annar í samræmi við teikningar og verklýsingar.

Verkinu er skipt upp í verkhluta, helstu magntölur í verkhlutum eru:
Bergskeringar í námu
25.000 m3
Bergskeringar í vegsvæði
4.700 m3
Fyllingar
33.000 m3
Fláafleygar
30.500 m3
Ræsalögn
783 m
Styrktarlag
40.500 m3
Burðarlag
14.100 m3
Tvöföld klæðing
67.000 m2
Grjótvörn
900 m3
Vegrið
770 m

Verklok eru 15. október 2027.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent rafrænt í útboðskerfinu TendSign  frá og með mánudeginum 28.  júlí 2025 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 fimmtudaginn  14. ágúst 2025.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.